UTPA
Blogg sem ég skoða..
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 28 september
28.09.2009 02:52:44 / maja

úps.

Ég updatea alltaf statusinn minn á facebook og set myndir þar inn, og hef látið það duga :) En núna kem ég með smá blogg.

Týpískur dagur í vikunni hjá mér er...
mánudaga og miðvikudaga:
8am - vakna.
8:45-9:35 - Management tími.
10:00 - Æfing. Individuals.
11:45 - Lyftingar.
2:35 - Marketing tími.
3:50 - Skólinn búinn.
4:00 - Sundlaugin, læra á bókasafninu, vera með Reettu. (misjafnt)

þriðjudagar og fimmtudagar:
7:00 - Vakna.
7:45 til 9 - Business Law tími.
10:00 - Liðs æfing.
11:00 Conditioning (hlaup og sprettir).
1:10 - Money & Banking tími.
2:35 - Borða + bókasafn.
4:00 - 5:15 - Finance tími.
6:00 - kaffitería með liðsfélugum.

Föstudagar:
10.00 Æfing.
12.00 Sundlaugin. mallið með Reettu :)
(Enginn tími hjá mér á föstud).

Kannski ekki mest spennandi blogg.. en ég þarf að finna blogg-taktinn aftur. Hann er að koma.

  • Helgarnar eru misjafnar. Mikið búið að gerast.
  • Vorum að fá nýja Nike körfuboltaskó þar sem þeir voru sérstaklega gerðir fyrir okkur frá NikeID og það stendur UTPA í tungunni. Very nice.
  • Það var smá kalt í síðustu viku, þurfti að fara einn daginn í hettupeysu í skólann. hehe. 
  • Fór í outlet mallið um helgina.. allt svo ódýrt en samt nýtt !
  • Þjálfarinn er æði.. og aðstoðarþjálfarinn er mjög nice líka.
  • Æfingarnar hafa gengið vel hingað til..
Þetta er allt að ganga eins og í sögu núna..
Kem með myndirnar næst. Netið er eitthvað hægt þessa dagana.
06.09.2009 06:52:25 / maja

Halló.

Jæja, þá er maður kominn til Texas aftur. Er búin að vera hérna í viku og það er svo ótrúlega gaman !! Ég dýrka þetta hérna. Byrjuðum í skólanum á mánudaginn og fórum á æfingar í vikunni, en vorum bara að spila þannig það var ekkert of erfitt :) Svo núna í næstu viku þá byrja hlaupin og lyftingarnar með, sem er bara mjög fínt. Er búin að koma mér fyrir í íbúðinni minni, rosa fín. Það er ekkert smá mikill munur að vera kominn með íbúð! Með sitt eigið herbergi, stofa, eldhús og bað. Nice.

Erum komnar með nýjan þjálfara og mér lýst bara mjög vel á hann. Erum bara búnar að fara á fund með honum en hann er ekki enn búinn að fá tækifæri til að þjálfa, ekki fyrr en núna á mánudaginn af því að allar í liðinu þurftu að fara í "physical" þar sem við förum til læknis í allskonar tjékk og blablabla... en það er allt búið svo að núna má æfa (en samt bara ákveðið margar klst á viku með þjálfara).

Það er rosa heitt... Fór að spila tennis í dag með Reettu og svo fórum við í sund. Voða nice.
Það er rosa mikið af nýju íþróttafólki komið og gaman að kynnast svona mörgum.

Dísa er að koma í heimsókn til mín næstu helgi! Það verður ekkert smá gaman að fá vinkonu frá íslandi í heimsókn. Vona að þið stelpurnar heima komist til mín líka... einn daginn :)

Kem með myndir bráðum.

Blés.
Maja.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2009 09:34:15 / maja

Styttist..

það styttist í að ég fari aftur út til USA.... Texas, aðeins 14 dagar! Tíminn líður svo hratt. Ég trúi ekki að ég er búin að vera heima í næstum 4 mánuði. Mér er farið að hlakka til að fara út aftur í hitann og sólina og auðvitað hitta alla vinina :) Erum komnar með nýjan þjálfara og ég er bara mjög spennt fyrir því, fresh start.

Bara láta vita af mér.. Byrja að blogga aftur og setja inn myndir þegar ég er komin út.

Evrópukeppnin að byrja með landsliðiðinu og erum við að fara til Sviss og Slóveníu núna bráðum og svo eru heimaleikir 19 ágúst og 26 ágúst!! Allir að mæta og styðja okkur til sigurs :)

Maja.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2009 03:31:39 / maja

2 ár í college búin..

ég hef verið lélég að blogga.. afsakið það! hah.

En skólinn búinn að vera góður.. er bara á fullu í lokaprófum. karfan er búin eins og er, það er bannað að æfa samkvæmt NCAA í prófa-viku. Samt höfum við stelpurnar verið að fara og spila ofl bara til að halda okkur í formi..

ég er að koma heim eftir 3 daga!!! ÉG TRÚI EKKI AÐ ÉG SÉ BÚIN MEÐ 2 ÁR Í HÁSKÓLA NÚNA. Tíminn líður ekkert smá hratt..

ég sit flest alla daga núna úti við sundlaugin að læra.. og verð að segja að það er rosa nice.

Þessi svínaflensa var aðeins að hræða mig fyrst.. en gerir það ekki núna. Kaninn var aðeins of ýktur. Fólk var labbandi um með grímur í skólanum og í kaffiteríunni, og fólk gat varla borðað eða drukkið út af þessum grímum, ji minn! haha. Allar grímur og sýkla-hreinsar voru uppseldir í wal-mart og target. hahaha.. og ef maður hnerraði eða hóstaði þá fékk maður dauða-look og manni var sagt að þrífa á sér hendurnar strax! hehe.. en þetta er samt eitthvað alvarlegt, en það er ekki hægt að vera að stressa sig á svona of mikið.

smá myndir, þarf að halda áfram að læra. 


kósý. 

Retta og ég. 

við aftur... á leiðinni á lokhófið. 

:)

blés.

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2009 13:31:00 / maja

stutt.

* kick-box og trampolín tími 3svar í viku! Það er ágætt að fara í þessa tíma..og fá helgarnar off. Við erum búnar að æfa vel og fáum þá frí um helgar.

* Það er flott veður, nema smá rigning í dag! oh, hvað ég sakna hennar ekkert!

* Það er búið að vera nóg að gera í skolanum.. í gær og í dag næ ég ekkert að fara uppá dorm á milli tíma, æfinga, lærdóms og hópverkefnis! JESS. Þannig að í gær komst ég loksins inná herbegi klukkan 8 um kvöldið frá því að vera á æfingu klukkan 8 um morguninn.. nice. :)

* Það eru bara 10 skóladagar eftir og 23 dagar þangað til ég kem heim. Ji hvað tíminn líður hratt. ótrúlegt.

Þarf að mæta á baseball leik og tennis um helgina því ég var búin að lofa að horfa á vini mína spila..

Ætlaði bara að hafa þetta stutt í dag.. 


stacky, rachel og ég .. 

ég og stacky enn og aftur.. 

.. 

Við stelpurnar með krökkunum.. 

..


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2009 13:44:12 / maja

Myndir !

Off season byrjar vel… Nóg um hlaup og skemmtilegheit. Hehe. En við fáum nú að spila 5 á 5 oft og enginn hefur fengið refsingu enn. Það er skilda að hver og ein á að mæta í Rec-center í spinning tíma, trampolín tíma og boot camp. Fjöör. (trampolín tíminn er skemmtilegastur) hah.

Var stoppuð af löggunni í fyrradag út af hrað-akstri. En ég var nú ekki á mikilli ferð.. það má aðeins keyra á 20 km hraða fyrir utan skólann og ég var á 40 eða eitthvað álíka. Ég gleymdi mér bara smáá og löggan var ekki lengi að ná mér. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er stoppuð af löggunni bæði hér og heima, þannig ég var hálf stressuð. En ég náði að leika mig út úr sektinni með því að bulla að ég vissi ekki hvað hámarkshraðinn væri og ég væri nú frá Íslandi en hann vissi ekki hvað Ísland var!! Löggann var með kúrekahatt, í kúrekastígvélum og með allt tilheyrandi (ekta Texas lögga) og það sem toppaði allt var að hann hét Hinojosa, nice.

Skólinn er fínn.. en er alveg að verða búin! Ég kem heim eftir 5 vikur, sem mér finnst alveg ótrúlegt en spennandi J

Hitinn fer hækkandi .. það er búið að vera í kringum 28-36 stiga hiti alla daga og mér finnst það voðalega gott. Það er svo gott að geta hent sér í stuttbuxur og bol alla daga.

Ég fer oft í sund eftir skóla til að slaka smá á í sólinni.. og gríp námsbækurnar með og reyni að læra.

Erum að fara á sumarhátíð hjá börnum með krabbamein núna á laugardaginn.. eigum að mæta í sumarkjól og hafa gaman með krökkunum.

Nokkrar myndir frá síðustu helgi: 


ég og Reetta, stelpa sem er í tennisliðinu og er frá Finnlandi. 

Við aftur kjánalegar í baseball jökkum.. 

ekta kana-jakkar! haha. 

ég, Jay, Shavon, Rachel og Piff í afmæli hjá einni í liðinu.. 

Herbergisfálginn og ég :) 

... að horfa á baseball leik hjá utpa.

Nokkrar frá Spring Break!


ég og eyjó nýbúin að sjoppa.. 

á ströndinni.. 

Komin til Six flags!

sátt með að vera komin eftir 4 klst akstur! 

Ég þorði í 2 tæki meðan Eyjólfur og stacky fóru í allt.. haha. Þetta var eitt af þeim sem ég gat varla horft á án þess að fá illt í magann.

Stacky og ég í SIX FLAGS í San Antonio.. 

Stacky og Eyjó að fá sér að borða.. 

ég og eyjó sæti í six flags.. 

Eyjólfur sáttur með daginn :) 

Kerran góða í walmart.. 

Vissi ekki að það væri til FAMILY klósett?? 

Fjöldinn á Spring break á South Padre Island.

Maja.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2009 20:45:36 / maja

Spring break búið ...

Ég hef tekið eftir því að ég verð latara að blogga eftir áramót. Held að ástæðan sé sú að tímabilið er á fullu og það eina sem ég geri er að æfa á fullu og fara í skólann! Svo er ég búin að kynnast svo mörgum að ég sit ekki alltaf inná dormi á kvöldin í tölvunni.  Núna fer ég í heimsókn... haha. Spring break var líka og þá var ég aldrei í tölvunni. Okey, nóg af afsökum... ég nenni bara ekki alltaf að blogga. heheee..

Annars er allt frábært að frétta. Karfan er búin. Skólinn er byrjaður aftur eftir Sprin break. Erum núna í "off season" þar sem við spilum 5 á 5 og þjálfarinn tekur upp æfingarnar og ef maður spilar lélega vörn þá þarf maður að koma morguninn eftir KLUKKAN 6 og taka spretti í refsingu. Svo erum við að lyfta á fullu og förum á einstaklingsæfingar þar sem það æfa bara 3 saman í hóp með þjálfara...

Er búin að vera dugleg að fara á hafnarbolta-leiki (baseball) og finnst þetta voða gaman! Ég er oft með stelpunum úr tennis liðinu og fer með þeim á leikin og hef kynnst mörgum á stuttum tíma..

Spring break var ÆÐI. Eyjólfur kom í heimsókn og við fórum á ströndina, fórum í Six Flags í San Antonio, fórum í mallið að verlsa, í outlet mallið, fórum í sund í sólbað, rúntuðum um, út að borða öll kvöld oooog vorum að hafa gaman í hitanum! :)

Annars eru bara 6 vikur þangað til ég kem heim.. trúi ekki að þetta hafi liðið svona hratt. Er með svo mikið af dóti og fötum að ég þarf að leigja mér geymslu í sumar til að geyma dótið mitt.

Nóg í bili.. þar til næst!

Maja.

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 18:36:01 / maja

veik..

Er búin að vera veik núna í nokkra daga og búin að sjá lækni 2svar.. :$ er með einhvern ótrúlegan magaverk þar sem ég get ekki staðið eða setið. Læknirinn sagði að þetta væri einhver vírus í maganum? uuuuu.... Fór í blóðprufu og allt þetta vesen. Missti af 2 æfingum og var bara rúm-liggjandi. Og svo fékk ég eitthvað "ofnæmis-kast" og varð öll í hellum á líkamanum (löppunum og höndunum)  þannig ég gat ekki spilað í gær og var bara í upphitunar gallanum. Og þetta klæjar ofur mikið. ugh. Fæ einhverja sprautu í kvöld sem á að laga þetta ofnæmi (veit ekki fyrir hverju ég er með ofnæmi fyrir, því ég hef aldrei fengið þetta). Vona að þessi lyf sem ég er að taka inn hjálpi mér. Erum í UTAH núna að spila síðustu leikina okkar.. Unnum í gær þannig við eigum möguleika á að vinna mótið, bara 2 leikir í viðbót!!!
Fáum svo frí í 1 eða 2 vikur..(Spring break) fer allt eftir hvernig okkur gengur á mótinu.

Bara láta vita af mér..

Maja.


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.02.2009 15:35:22 / maja

Spring break eftir 2 vikur.

Farin til Chicago..

EYJOLFUR  bróðir KEMUR EFTIR 2 VIKUR!! vá hvað ég er spennt. Er búin að panta hótel á ströndinni.. því við ætlum að vera þar í 2 daga yfir spring break. Stacky og stelpurnar í liðinu eru líka að fara, svo það verður gaman. Ætla að fara með eyjó í vatnsleikjagarð og svo outlet mallið og svona.. svo verður MTV á ströndinni og fleira.. það verður pakkað.

south-padre-island-view_1.jpg picture by Colombiandiosa
ströndin. 


..og fólkið yfir spring break.


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 02:40:09 / maja

Think pink+senior night..

Think Pink leikurinn (fyrir brjóstar-krabbamein) var um helgina þar sem við vorum með bleikar skóreimar, bleik hárbönd, bleikt svitaband og bleika slaufu í hárinu + bleikir sokkar og svo hituðum við upp í bleikum bolum!

Mjög skemmtileg helgi.. En brjálað mikið að gera í skólanum núna þannig ég þarf að vera að læra alla vikuna fyrir miðannarpróf!

Förum til Chicago næstu helgi ;)

myndir: 

smá myndataka. 

Síðasti heimaleikur Stackyar!!! ég og stacky á senior night fyrir leikinn... 

ég með fake bros..rétt fyrir leikinn... 

inní klefa.. 

.... aftur.

ég og herbergisfélaginn..

blés.
Maja.

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2009 14:25:19 / maja

LAX



Hafiði séð myndina "Night at the Roxbury"? Þetta er allaveganna einn af aðal leikurunum í henni. hehe. Hittum hann á flugvellinum í L.A. 


..

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 18:34:38 / maja

nokkrar frá Cali.

Það er rosa gaman í Californiu..
Fórum á ströndina og svo í Hollywood í gær.

Kem með blogg um ferðina bráðum..

Nokkar myndir: 


ég og stacky á ströndinni að fíflast.. 

Liðið .. vorum ný komnar af æfingu og tókum stopp á ströndinni :) 

.... 

Janita og ég.. 

... 

ég og stacky á California Pizza. 

ég og stacky... og Tom Cruise stjarnan. 

hehe..

ég og stackeyy í rútunni.. 

... það væri gaman að vera í þessum skóla. 

HOLLYWOOD. 

Skritin mynd af mer.. eg varð svo feimin því ALLIR voru að horfa á mig taka þessa mynd. 

Harrypotter gengið.. 

ég og Jackson vinur minn. 

að labba yfir götuna.. 

Elvis. 

Búnar að shoppa og mjög ánægðar ;) 

.. 

hehe.. Rachel og ég. 

Stacky og ég að fíflast. 

Beverly hills. 

Það er ekki hægt að versla á þessari götu nema vera búinn að panta tíma í búðina..

Maja.. 

Jay og ég. 

Jay, stack og ég. 

ég og stacky .. 

... 

haha.. hvað er svona fyndið ?

hehe.. 

vó.. reyna að brosa á móti sól!

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2009 14:40:16 / maja

Cali á morgun.

ordabok.is reddar mér oft í erfiðum áföngum.. stundum skil ég ekki ákveðin orð og ég læri nýtt orð á hverjum degi..

Er orðin spennt fyrir Cali. Æfum á föstudaginn í Cali. Leikur á laugardaginn og svo fáum við Sunnudaginn OFF þar sem við fáum að versla og skoða okkur um. Á mánudaginn er æfing o.fl. Leikur á þriðjudag og svo leggjum við af stað "heim" á miðvikudaginn. Það sem mér finnst algjör snilld við allt þetta er að maður þarf ekki að borga krónu (nema maður vilji versla sér eitthvað) ;) . Þeir borga flugið, matinn, hótelið...og maður þarf að borga til baka með því að spila vel og æfa vel.

Næsta stopp eftir Californiu er Chicago.. og það eru BARA 3 vikur eftir af seasoninu!! Tíminn líður svo hratt.

Eyjólfur kemur eftir 29 daga! 8)

Ætla að gera smá tjékk... ef þú lest þetta blogg skrifaðu þá "las" eða "hæ.. eða bara whatever.. og nafnið þitt með.

Blés.

» 11 hafa sagt sína skoðun

10.02.2009 05:15:25 / maja

sól&hiti.

Kom mér virkilega á óvart áðan þegar ég frétti að Chris Brown hafi lamið Rihönnu... þetta er útúm allt í fréttunum. vó. Hvað er í gangi ?

Enn yfir í annað.. þá er skólinn búinn að vera á fullu. Búin að taka próf í öllum áföngunum og skrifa ritgerðir.. Er alltaf á bókasafninu að lesa því ég læri best þar. Þegar ég er uppá dormi þá horfi ég á sjónvarpið, fer á facebook, kíki á myspace, skoða blogg... msn.. skype. haha. Þannig ég get engann veginn lært með tölvuna fyrir framan mig.

Fengum rosalegt frí um helgina. Föstud,laugard og sunnud en við þurftum samt að fara sjálfar að hlaupa 1-2 af þessum dögum. Svo mættum við á æfingu í morgun sem var bara góð... Það verður gaman að fara til Californiu núna á föstudaginn, í 6 daga og spila 2 leiki.

Það var brjálað heitt í dag.. 30 stiga hiti og sól! Það er oftast heitt en í dag fannst mér óvenju heitt.. en samt gott 8)

Mætti seint í tíma um daginn því æfingin var svo löng.. allar mættu seint í sína tíma líka.

Blés.
Maja.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2009 14:30:21 / maja

Næsta stopp er L.A.

Það er kalt í dag.. Einhver kuldi að fara hérna yfir. Mér finnst ekki gott að hafa það kalt! Frétti samt að það væri ofur kalt heima líka...þannig ég ætti ekki að vera að kvarta.

Eyjólfur bróðir kemur eftir 38 daga!! Æði..Hann kemur líka á besta tímanum hérna.. það verður mjög heitt og mikil sól.. 8) South Padre Island sem er ströndin hérna rétt hjá, var valinn þriðji besti og vinsælasti Spring break staðurinn sem flest fólk fer á í Bandaríkjunum á þessum tíma.. nice.

Unnum Chicago State um daginn.. góður sigur þar. Núna eru við komnar í tveggja vikna "pásu" þar sem við spilum ekki aftur fyrr en 14 feb. Förum til L.A (Californiu) 13 feb að keppa og verðum þar í VIKU.. Bæði gaman og slæmt. Gaman að fá að vera í Cali í heila viku og spila 2 leiki og hafa smá gaman inná milli en ekki gott að missa heila viku úr skólanum..en kennararnir skilja þetta oftast því það eru svo margir athletes sem þurfa að fá frí.

Helgin var ofur skemmtileg... ;)

Ef við eigum góða æfingar-viku þá fáum við frí næstu helgi.. Allt liðið ætlar sér að gera gott í vikunni til að fá helgarfrí! Það væri mjög gott að fá helgar-frí.

Jææja. Er í tíma núna og kennarinn farinn að gefa mér smá look því hann nappaði mig á facebook áðan! úps. Er samt líka að taka glósur.. ehm.

Lyftingar og æfing í dag.
Blés.

Maja :)


ég og stacky í New York með Starbucks. 

Jay&Piff. 

Taylor&Rachel.. á Bj´s

Tshay og Brit. 


Sól næstu helgi!!! Það á að hitna í vikunni... svo gott að sitja við sundlaugina og slaka á.

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 26
Heimsóknir
Í dag:  21  Alls: 90419
Lag Vikunnar.
Beyonce-Sweet dreams.
Könnun
Hvar vilt þú vera ?
Bandaríkjunum..
7 atkvæði

Spáni..
0 atkvæði

Norðurlöndunum..
1 atkvæði

Þýskalandi..
0 atkvæði

Annarsstaðar..
2 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 10